Persónuverndaryfirlýsing
Vinnsla persónuupplýsinga
Tegundir persónuupplýsinga, tilgangur vinnslunnar og heimildir fyrir henni
Til þess að Vaskur ehf. geti afgreitt þig í vefversluninni og veitt þér þá þjónustu sem boðið er upp á þarf fyrirtækið að vinna með margs konar persónuupplýsingar, í ýmiss konar tilgangi og á grundvelli ólíkra heimilda. Þetta eru þær persónuupplýsingar sem við öflun beint frá þér en við öflum engra upplýsinga um þig annars staðar frá.
Tengiliðaupplýsingar
Þ.e. nafn, heimilisfang og netfang: Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar svo hægt sé að tryggja að við sendum þær vörur sem eru keyptar á réttan stað, til að gefa okkur kost á að eiga í samskiptum um vörukaupin og til að tryggja að réttur viðskiptavinur sé skráður sem kaupandi, svo sem vegna reikningagerðar og ef kemur til vöruskila. Okkur er því nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin, sem og vegna lagaskyldu sem hvílir á okkur, einkum vegna laga um neytendakaup, virðisaukaskatt og bókhald.
Greiðsluupplýsingar
Við vistum aldrei greiðslukortanúmer þitt heldur gefum þér, þegar kemur að því að greiða fyrir vörur, samband við greiðslusíðu færsluhirðis þar sem þú slærð sjálf inn greiðslukortanúmer þitt og aðrar upplýsingar um það greiðslukort sem þú notar. Í staðinn fáum við frá færsluhirðinum staðfestingu á að skuldfærsla á greiðslukortið hafi tekist og þær upplýsingar vinnum við með í bókhaldslegum tilgangi. Því er okkur nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar vegna samnings þíns við okkur um vörukaupin og vegna lagaskyldu okkar, svo sem samkvæmt lögum um bókhald.
Upplýsingar um vörukaup þín hjá okkur
Þ.e. hvaða vörur þú keyptir, hvenær og fyrir hvaða upphæð: Við vinnum með þessar upplýsingar, eins og með tengiliðaupplýsingarnar, sbr. hér að framan, í þeim tilgangi að geta selt og sent þér viðkomandi vörur og til að geta staðið við lagaskyldur okkar. Okkur er því nauðsynlegt að vinna með þessar upplýsingar annars vegar vegna samnings þíns og okkar og hins vegar vegna lagaskyldu sem hvílir á okkur.
Auk þess að vinna með persónuupplýsingar notum við margs konar ópersónugreinanlegar upplýsingar til að starfrækja vefverslunina, t.d. tölfræðilegar upplýsingar um hvenær viðskiptavinir okkar versla hvaða vörur o.s.frv. Engar slíkar upplýsingar er hægt að rekja til tiltekins viðskiptavinar heldur er einungis um að ræða ópersónugreinanlegar upplýsingar um hópa viðskiptavina.
Miðlun persónuupplýsinga
Þeim persónuupplýsingum um þig sem við vinnum með vegna vefverslunarinnar miðlum við ekki til þriðja aðila, svo sem til utanaðkomandi vinnsluaðila til dæmis til geymslu eða bókhaldsþjónustu, nema í eftirtöldum tilvikum:
Bókhaldsgögn eru afhent innlendum endurskoðendum okkar eftir því sem þeir kunna að óska eftir lögum samkvæmt.
Við áskiljum okkur rétt til að hlíta fyrirmælum þar til bærra íslenskra dómstóla og eftirlitsstofnana um afhendingu gagna, þar á meðal þeirra sem kunna að innihalda persónuupplýsingar.
Afrit af gögnum eru vistuð hjá vottuðum vinnsluaðila okkar innan EES.
Geymslutími
Geymslutími þeirra persónuupplýsinga sem við vinnum með ræðst af þeim tilgangi sem þeirra er aflað í og þeirri heimild sem vinnslan byggist á. Þannig geymum við tengiliðaupplýsingar þínar á meðan þú ert skráður notandi vefverslunarinnar.
Við vinnum með upplýsingar um vörukaup þín ásamt greiðsluupplýsingum, þ.e. skuldfærslustaðfestingar frá færsluhirði, í þann tíma sem okkur er skylt vegna ákvæða í lögum um bókhald í lögum, þ.e. nú í minnst 7 ár en ekki lengur en í 10 ár.
Réttindi þín
Þar sem við vinnum, eins og kemur fram hér að framan, með persónuupplýsingar um þig þá hefur þú margs kyns réttindi sem mikilvægt er að þú vitir af:
Þú átt rétt á að óska eftir aðgangi að og afriti af persónuupplýsingum þínum hjá okkur, láta okkur leiðrétta þær ef þær eru rangar eða villandi eða láta okkur eyða þeim ef við höfum ekki lengur heimild til að vinna með þær. Þessum réttindum er nánar lýst í lögum um persónuvernd, sbr. nú 17. og 20. gr. laga nr. 90/2018, Þá átt þú samkvæmt síðarnefndu lagagreininni rétt á að flytja eigin gögn eða að við takmörkum vinnslu persónuupplýsinga um þig, að uppfylltum nánar tilteknum skilyrðum. Þú átt einnig rétt á að andmæla vinnslunni skv. 21. gr. laganna.
Þú átt rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd vegna vinnslunnar. Skrifstofa hennar er að Rauðarárstíg 10, 105 Reykjavík og netfang hennar er postur@personuvernd.is.
Varnarþing
Rísi réttarágreiningur í tengslum við skilmála þessa skal bera hann undir héraðsdóm Austurlands.