Líklega ein skemmtilegasta verslun landsins.
Um okkur
Fyrirtækið Vaskur ehf var stofnaður 1989 af Guðjóni Sigmundssyni og Sigríði Guðmarsdóttur.
Í dag rekum við í Vask verslun með ýmsum vöruflokkum þar sem við leitumst við að vera með frábær verð á gæðavörum.
Við hvetjum þig til að skoða vefverslunina okkar og gera samanburð, meðal vöruflokka eru útivistarvörur og útivistarfatnaður, leikföng og heimilisvörur ásamt mörgu öðru.
Við munum jafnt og þétt á komandi vikum bæta við vöruúrvalið okkar og við hvetjum þig til að fylgjast vel með okkur t.d. á samfélagsmiðlum.
Verslunin okkar á Egilsstöðum, sem margir kölluðu skemmtilegustu verslun landsins, brann því miður í September 2022.
Í dag erum við staðsett í Sólvangi 5 á Egilsstöðum og stefnum að því á komandi mánuðum að endurskapa þessa skemmtilegu verslun.
Á meðan er ekkert mál að skoða vefverslun okkar og lítið mál er að panta á netinu og sækja til okkar í verslunina, eða fá sent.