Lýsing
Craft Active Extreme X Zip er peysa sem er hönnuð fyrir æfingar við kaldar og vindasamar aðstæður.
Peysan er með SEAQUAL pólýester, Coolmax Air Technology og endurunnið pólýester til að veita einstaka líkamshitastjórnun meðan á erfiðum æfingum stendur.
Að auki er flíkin með vöffluprjónaðri hönnun fyrir aukinn rakaflutning og þægindi.
SEAQUAL umhverfisvænt efni
Active Extreme X Zip LS eru gerð úr endurnýttu sjávarplasti, 100% endurunnið efni.
Endurunnið SEAQUAL efni er ekki aðeins umhverfisvænt heldur býður upp á einstakan rakaflutning og öndun.
Coolmax Air tækni
Coolmax Air Technology efnið er hannað til að hámarka náttúrulega hitastýringu líkamans við kaldar sem og heitar aðstæður.
Efnið er með pólýestertrefjum með einstöku skrúfulaga þversniði og veitir frábæra hitastjórnun.
Prófanir hafa sýnt að flíkur framleiddar með Coolmax Air tækni bjóða upp á yfirburða líkamshitastjórnun, mikil þægindi og frábær hraðþurrkandi áhrif.
Þunnt, létt og teygjanlegt efni
SEAQUAL pólýester framleitt úr endurunnu plasti
Coolmax Air Tækni
Vöffluprjónuð hönnun fyrir hámarks öndun og þægindi
Neta innlegg í handarkrika fyrir aukna loftræstingu
Flatir saumar sem fylgja líkamshreyfingum
“Tight fit”
Rakaflutningur: 5 af 5
Virknistig: 5 af 5
Hitastig: -5ºC til +10ºC
Upplýsingar
Sendingarmöguleikar
Ef verslað er fyrir meira en 10.000 kr. að þá er frí sending.
Skilað & skipt
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Nánari upplýsingar.
Aðstoð
Hafðu samband í síma 470-0010, eða sendu okkur línu á vaskur@vaskur.is.
Tækniupplýsingar
Stærð | L, M, XL |
---|